Fá sýnishorn
Vefverslun

Vefverslun sem er einföld fyrir þig og viðskiptavininn.

Við setjum upp vefverslun sem passar við vörumerkið, vörurnar og raunverulegt söluferli fyrirtækisins. Markmiðið er skýr kaupaleið, góð upplifun í síma og bakendi sem starfsfólk getur notað án tæknilegrar sérþekkingar.

Excar vefverslun sem Gonora hannaði og smíðaði
ForsíðaVefverslun
01

Vörur, greiðslur og rekstur á einum stað

Verslunarlausnin getur innihaldið vöruflokka, lagerstöðu, myndir, verð, greiðslugátt og pantanir. Við förum yfir sendingar, skilmála og greiðsluleiðir áður en verslunin fer í loftið.

  • Snjallsímavænar vöru- og flokkasíður
  • Tenging við viðeigandi greiðslulausn
  • Einföld umsýsla á vörum og myndum
  • Mælingar fyrir sölu og markaðssetningu
02

Ekki sniðmát sem lítur út eins og allar aðrar verslanir

Útlitið er mótað út frá vörumerki og vöruúrvali. Við veljum myndhlutföll, áherslur og efnisröð sem hjálpa gestum að bera saman vörur og taka ákvörðun.

03

Vex með rekstrinum

Hægt er að bæta við vörum, efni og tengingum eftir því sem reksturinn þróast. Gonora getur einnig tengt vefinn við þau kerfi sem fyrirtækið notar þegar þörf er á.

Næsta skref

Sjáðu hugmyndina áður en þú ákveður.

Sendu inn upplýsingar um fyrirtækið og fáðu tvær hönnunartillögur án skuldbindingar.

Byrjaðu hér
Vefverslun fyrir íslensk fyrirtæki | Gonora