Fá sýnishorn
Um Gonora

Tæknin á að styðja við gott handverk, ekki standa í vegi fyrir því.

Hugmyndin að Gonora er kennd við ömmu Nóru, mikla handverkskonu sem skapaði fallega hluti en hefði ekki átt auðvelt með að setja upp og reka hefðbundna vefsíðu. Gonora var byggt til að brúa það bil.

ForsíðaUm Gonora
01

Íslensk þjónusta

GoNora ehf. er íslenskt fyrirtæki með aðsetur í Mosfellsbæ. Samskipti og aðstoð fara fram á íslensku og lausnirnar taka mið af íslenskum fyrirtækjum, greiðslum og rekstri.

02

Fagleg hönnun með einföldum rekstri

Við viljum að vefurinn líti út eins og fagfólk hafi unnið hann, en að daglegar breytingar séu á færi fólksins sem þekkir fyrirtækið best.

03

Ábyrgð eftir afhendingu

Vefsíða er lifandi rekstrartæki. Gonora býður áframhaldandi hýsingu, þjónustu og þróun svo lausnin geti breyst með fyrirtækinu.

Næsta skref

Sjáðu hugmyndina áður en þú ákveður.

Sendu inn upplýsingar um fyrirtækið og fáðu tvær hönnunartillögur án skuldbindingar.

Byrjaðu hér
Um Gonora | Einfaldari vefsíðugerð fyrir fyrirtæki