Gonora
Einfalt, fyrir alla

Faglegar heimasíður fyrir fyrirtæki.

Gonora hannar og smíðar faglegar vefsíður og vefverslanir með skýru verði, einföldum bakenda og tveimur tillögum innan 48 tíma.

Sýnishorn án skuldbindingarFrítt prufulén í 30 dagaTvær tillögur innan 48 tíma
Byggt fyrir fólk. Ekki bara tæknifólk.

Tvær tillögur innan 48 tíma

Við útbúum tvær hönnunartillögur sem þú getur skoðað áður en þú ákveður næsta skref.

Vefverslun

Seldu vörur og þjónustu með einföldum hætti.

Hýsing og lén

Örugg hýsing, eigið lén og skýrar DNS-leiðbeiningar.

Einfaldur bakendi

Aðgangur að einföldum bakenda svo þú getir lagfært síðuna eftir þörfum.

Pósthólf

Faglegt netfang fyrir fyrirtækið þitt.

Greiðslur

Tengingar við greiðslugáttir.

Google auglýsingar

Undirbúið fyrir auglýsingar og mælingar.

Tengjum saman kerfin

Tengjum vefsíðuna við þau kerfi sem þú notar í dag, t.d. DK og Payday.

Allt sem þú þarft

Einn vettvangur. Endalausir möguleikar.

Gonora sameinar vefsíðugerð, vefverslun, greiðslur, póst, lén og einfalt ritstjórnarkerfi. Þú færð kerfi sem er tilbúið fyrir þinn rekstur, en samt nógu einfalt til að breyta sjálfur.

  • Einfalt ritstjórnarkerfi fyrir texta, myndir og vörur
  • Þú færð tvær hönnunartillögur áður en þú ákveður næsta skref
  • Við stofnum svæði fyrir fyrirtækið með eigin síðu, stillingum og aðgangi
  • Greiðslur, pósthólf og lén tengjast þegar þú ákveður að fara í loftið
  • Hafðu samband og við finnum lausnina fyrir þig
Forskoðun á vefsíðu og einföldum bakenda Gonora
Af hverju Gonora?

Hugmyndin byrjaði hjá Ömmu Nóru.

Amma stofnenda Gonora var kölluð Nóra. Hún var mikil handverkskona, prjónaði og saumaði af listfengi og skapaði hluti sem fólk dáðist að.

Tæknin var hins vegar ekki hennar heimur. Vefsíður, markaðssetning og allt sem fylgir því að koma sér á framfæri hefði auðveldlega getað orðið stærri hindrun en sjálft handverkið.

Gonora er hugsuð fyrir fólk eins og Ömmu Nóru: fólk með hæfileika, þjónustu eða vörur sem eiga skilið að sjást, án þess að þurfa fyrst að læra allan tæknirekstur eða markaðsfræðina.

Ferðalag viðskiptavinar

Frá hugmynd að virkri síðu án flækjustigs.

Tvær leiðir til að byrja

Leið 1

Fylltu út „Fá sýnishorn“

Settu upplýsingarnar sjálf/ur inn í gegnum „Fá sýnishorn“-takkann á forsíðunni og fáðu tillögur sendar.

Leið 2

Sendu okkur línu

Sendu tölvupóst á hallo@gonora.is og segðu okkur frá rekstrinum og hugmyndum um síðuna. Við komum til baka með tillögur, án skuldbindinga.

01

Við sendum tvær hönnunartillögur

Þú sérð sömu þjónustu í tveimur ólíkum útfærslum með þínum litum, merki og myndefni.

02

Þú velur hvað þér líst best á

Þú velur þá tillögu sem þér líst betur á og sendir okkur ábendingar um hvað mætti fara betur.

03

Við lögum og sendum lokayfirferð

Við vinnum úr athugasemdunum, fínpússum síðuna og sendum hana aftur til lokayfirferðar.

04

Þú ákveður hvort þú ferð áfram

Greiðsla kemur fyrst til skoðunar eftir lokayfirferð, þegar þú veist nákvæmlega hvað þú ert að fá.

Vefsíður sem við höfum smíðað

Verkefni komin í loftið

02

Tvö verkefni eru komin í loftið núna. Hér eru lifandi dæmi um hvernig Gonora kemur vefjum úr hugmynd, hnökrum og hálfkláruðum verkefnum yfir í virka síðu.

LiveExcar.is - live website built by Gonora
Vefverslun og vörukerfi02

Excar.is — hannað og smíðað af Gonora

Excar er vefverslun og vörusíða sem Gonora hannaði og smíðaði frá hugmynd að virkri síðu.

VefverslunVörurLive domain
Skoða excar.is

"Við vorum búin að vera lengi að þróa Harpix.is en það stoppaði alltaf á einhverju. Það var þá sem að við sáum GoNora og í kjölfarið fór boltinn að rúlla. Frammúrskarandi þjónusta og fljót svör er það sem einkennir okkar viðskiptasamband við GoNora og við mælum hiklaust með því að fá þau til að sjá um heimasíðurnar. Það er allt gert eftir þörfum og allir hnökrar leystir."

Eigandi Harpix.is

"Gonora sá um að hanna og smíða nýja vefinn okkar hjá Excar.is. Ferlið var einfalt og markvisst og við fengum faglega vefsíðu og vefverslun sem hentar okkar rekstri. Samskiptin voru góð, brugðist var hratt við okkar óskum og útkoman er nákvæmlega það sem við þurftum. Við getum hiklaust mælt með Gonora."

Eigandi Excar.is
Verð

Tvær þjónustuleiðir.

Öll verð eru án VSK — 24% bætist við á reikningi.

Einfalt

Grunnur

Fyrir einyrkja, iðnaðarmenn og þjónustufyrirtæki.

89.000 kr.

uppsetning

8.900 kr./mán

á mánuði

  • Sérhönnuð heimasíða
  • 100 GB geymslupláss
  • 10 netföng
  • Aðgangur að ritstjórnarkerfi
  • Hýsing, SSL og dagleg afritun
  • Grunn SEO og GEO leitarvélabestun
  • 30 mín. breytingavinna á mánuði
Ráðlagt

Verslun

Fyrir fyrirtæki sem vilja vefverslun, vörur og greiðslur.

149.000 kr.

uppsetning

14.900 kr./mán

á mánuði

  • Allt í Grunni
  • 30 netföng
  • Vefverslun með greiðslugátt
  • 30 vörur uppsettar í grunninn
  • Settu inn fleiri vörur sjálf/ur — eða við gerum það á 1.500 kr./vöru
  • 30 mín. breytingavinna á mánuði

Viðbætur

Tímabókunarkerfi

2.500 kr./mán

Bókunardagatal á síðunni. Frí vika til að prófa.

Sértengingar

Frá 2.500 kr./mán

Tengjum við bókhald, greiðslugáttir og önnur kerfi. Verð fer eftir umfangi — segðu okkur hvað þú þarft.

Vörur og breytingarBáðar þjónustuleiðir innihalda 30 mínútna breytingavinnu á mánuði. Verslun inniheldur uppsetningu á 30 vörum. Fleiri vörur setur þú inn sjálf/ur að kostnaðarlausu, eða við gerum það á 1.500 kr. per vöru. Innifalinn tími safnast ekki upp milli mánaða og umframvinna kostar 19.900 kr./klst. + VSK.
Fá sýnishorn
Aðstoð

Tækniupplýsingar og leiðbeiningar.

Núverandi viðskiptavinir fá aðgang að þjónustuborði í bakendanum sínum og geta sent þjónustubeiðnir beint þaðan. Einnig er alltaf hægt að hafa samband í tölvupósti.

Senda á hallo@gonora.is
Hvernig flyt ég eða tengi lén?

Þú bætir léninu við í stjórnborðinu (sem þú færð aðgang að). Þá birtast nafnaþjónar (nameservers) sem þú vísar léninu á hjá skráningaraðilanum þínum — t.d. á isnic.is. Eftir það sjáum við um allt hitt sjálfkrafa, bak við tjöldin: vef, póst og öryggi. Þú þarft ekki að handfæra neinar DNS-færslur.

Hvaða DNS færslur þarf fyrir vef, póst og öryggi?

Þú þarft ekki að setja þær upp sjálf/ur — við sjáum um það. Tæknilega notar vefurinn CNAME og póstur notar MX, SPF, DKIM og DMARC, en allt er sett upp sjálfkrafa þegar nafnaþjónarnir vísa á okkur.

Hvernig tengi ég pósthólf í Outlook eða Mail í iPhone?

Notaðu IMAP fyrir móttöku og SMTP fyrir sendingu. Þjónn er mail.gonora.is, notandanafn er allt netfangið, IMAP gátt er 993 með SSL/TLS og SMTP gátt er 587 með STARTTLS.

Fæ ég leiðbeiningar fyrir minn vef?

Já. Með hverjum vef fylgja sérsniðnar leiðbeiningar sem sýna nákvæmlega hvernig þú skráir þig inn og breytir texta, myndum, vörum, opnunartíma og þeim stillingum sem eru notaðar á þínum vef. Þannig færðu leiðbeiningar sem passa við þína lausn, ekki almennt skjal.

Hvað þarf fyrir vefverslun og greiðslur?

Við förum yfir vörur, sendingar, skilmála og greiðsluleiðir. Tengingar við greiðslugáttir eru settar upp þegar grunnupplýsingar og samþykktir liggja fyrir.

Kostar að senda inn litlar breytingar?

Nei, ekki ef þær rúmast innan innifalins mánaðarlegs vinnutíma í pakkanum. Ef farið er yfir samning kostar umframvinna 19.900 kr./klst. + VSK.

Heimasíðugerð fyrir fyrirtæki | Fagleg vefsíða | Gonora