HUGBÚNAÐARGERÐ · KERFISTENGINGAR
4C Forsjá.
Frá mæligögnum
að yfirsýn.
Sérsmíðað vöktunarkerfi sem sameinar gagnasöfnun, mæligögn og viðvaranir í viðmóti fyrir daglega vinnu.
4C FORSJÁ · SÉRSMÍÐAÐ VÖKTUNARKERFI
Skynjarar og mæligögn
Tengingar við moneo og MQTT
Söfnun og gagnasaga
Gögn tengd fyrirtækjum, svæðum og vélum
Vöktun og viðvaranir
Mælaborð, línurit og aðgangsstýring
Verkefnið
Mæligögn þurfa að skila sér frá skynjurum og tengdum kerfum yfir í skýra yfirsýn. Starfsfólk þarf að geta skoðað stöðu véla, rýnt í gagnasögu og brugðist við frávikum.
Lausnin
Gonora smíðar Forsjá sem sjálfstætt hugbúnaðarkerfi með gagnasöfnun, tengingum við moneo og MQTT, mælaborðum, línuritum og viðvörunarflæði. Gögn og aðgangur eru afmörkuð eftir fyrirtækjum, svæðum og vélum.
Það sem verkefnið sameinar
↗ Tengingar við ytri kerfi og gagnastreymi
↗ Gagnalíkan og söfnun mæligagna
↗ Sérsmíðuð mælaborð og viðmót
↗ Aðgangsstýring og viðvörunarflæði
Gagnaleiðin er hluti af vörunni.
Moneo og MQTT flytja mæligögn inn í Forsjá. Þar tengjast þau réttu fyrirtæki, svæði, vél og mælirás.
Frá gagnasafni að daglegri notkun.
Starfsfólk skoðar stöðu og gagnasögu í mælaborðum og línuritum. Viðvörunarmörk hjálpa því að bregðast við frávikum.
Hvað gerir þetta að sérsmíði?
Gonora þróar gagnainntak, aðgangsstýringu og viðmót sem eina lausn. Vefur 4C kynnir þjónustuna; Forsjá heldur utan um vöktunina.
Meira um hugbúnaðargerð hjá Gonora ↗