Beint í efni

MCP FYRIR VEFINN ÞINN

Þú segir hvað.
Aðstoðarmaðurinn hjálpar.

Breyttu texta, myndum og síðum með MCP-samhæfu gervigreindartóli. Allt fer í gegnum þinn Gonora-aðgang, með aðgangi sem þú getur afturkallað.

Opna MCP í vefumsjón Áttu ekki vef enn? Veldu sniðmát →

Þinn vefur, þinn aðgangur.

  1. Virkjaðu tenginguna.

    Veldu MCP í vefumsjóninni. Þú sérð verð og samþykkir viðbótina áður en greitt er.

  2. Tengdu þitt tól.

    Afritaðu slóðina í MCP-samhæft tól og skráðu þig inn hjá Gonora. Engin lykilorð eða aðgangslyklar þurfa að fara í spjallið.

  3. Skoðaðu áður en þú birtir.

    Aðstoðarmaðurinn vinnur í drögum. Forskoðun og birting eru aðskilin skref svo þú getir yfirfarið breytingarnar.

Veldu hver má breyta.

Stjórnandi vefs gefur notendum aðgang og velur heimildir. Ritstjórar geta unnið með efni án þess að fá birtingarheimild. Þú getur afturkallað notanda eða tengt tól í vefumsjóninni.

MCP gefur aðeins aðgang að þínum vef. Tölvupósthýsing, hönnunar- og breytingavinna frá Gonora og áskrift að gervigreind fylgja ekki.

UPPSETNING

Tengdu forritið sem þú notar.

Þín Gonora-tengislóð er í vefumsjón. Þú afritar hana, tengir forritið og samþykkir aðgang að réttum vef. Lykilorð og aðgangslyklar eiga aldrei heima í spjallinu.

Afrita mína tengislóð í vefumsjón ↗
ChatGPTBusiness eða Enterprise/Edu fyrir breytingar
  1. Opnaðu ChatGPT í vafra á réttu vinnusvæði. Stjórnandi þarf að leyfa sérsniðnar MCP-tengingar.
  2. Farðu í Plugins, veldu plúsinn og Add custom MCP server. Eldra viðmót notar Apps → Create í stillingum.
  3. Gefðu tengingunni heiti, límdu alla Gonora-tengislóðina og veldu OAuth. Yfirfarðu viðvörunina og veldu Create as a plugin.
  4. Skráðu þig inn hjá Gonora, yfirfarðu vef og heimildir, virkjaðu síðan tenginguna í ChatGPT. Í nýju samtali velurðu hana með @.

Pro styður aðeins lestur og sókn gagna. Ekki kaupa MCP-viðbótina í þeirri trú að Pro geti breytt síðunni.

Uppsetning og áskriftarskilyrði hjá OpenAI ↗
ClaudeSérsniðin fjartenging með OAuth
  1. Opnaðu Customize → Connectors og veldu + Add → Add custom connector. Í eldri viðmóti geta tengingar verið undir stillingum.
  2. Gefðu henni heiti og límdu alla Gonora-tengislóðina. Yfirfarðu OAuth-stillingarnar og veldu Sign in now.
  3. Undir OAuth-biðlara velurðu Register automatically. Ekki útbúa eigin Client Secret eða setja leynilykla í hausa.
  4. Ljúktu við tenginguna, skráðu þig inn hjá Gonora og samþykktu réttar heimildir. Virkjaðu Gonora fyrir samtalið í tengingum við plúsinn í skilaboðareitnum.

Á Team og Enterprise bætir eigandi eða viðeigandi stjórnandi tengingunni fyrst við hópinn; hver notandi tengir síðan sinn eigin Gonora-aðgang.

Uppsetning og aðgangsskilyrði hjá Claude ↗

Byrjaðu á drögum.

Þegar forritið styður breytingar og þú hefur veitt „Vista drög“ í Gonora, má prófa:

Lestu síðurnar mínar og segðu mér hvað þú sérð. Leggðu síðan til styttri forsíðutexta. Vistaðu breytinguna í drög og gefðu mér einkaforskoðun. Ekki birta neitt.

Yfirfarðu einkaforskoðunina áður en þú biður sérstaklega um birtingu. Til þess þarf stjórnanda og „Birta“ í heimildum tengingarinnar. Ritstjórar geta ekki veitt birtingarheimild.

Vantar tengingu eða aðgang?Slóð, 401 og stjórnandi vinnusvæðis

401: hrá MCP-slóð í vafra má skila 401. Tengdu hana í AI-forritinu og ljúktu OAuth-innskráningu. Athugaðu að viðbót, tenging og aðgangur að vefnum séu virk.

Óþekkt slóð: afritaðu alla slóðina úr vefumsjón, ekki lén vefsins eða innskráningarsíðu. Hún endar á /mcp.

Tenging eða breytingar í boði sjást ekki: athugaðu AI-áskrift, rétt vinnusvæði og stjórnandaheimildir. Ef aðeins „Lesa“ var samþykkt þarf að endurtengja með breytingaheimild. Sjá gildandi skilyrði á hjálparsíðunum hér að ofan.

Fara gögn til ChatGPT eða Claude?Já, heimilaðar niðurstöður tóla fara til AI-þjónustunnar

MCP takmarkar aðgang að vefnum og aðgerðum og dregur úr handvirku afriti. Niðurstöður tóla, þar á meðal efni úr óbirtum drögum, fara samt til AI-þjónustunnar þegar tengingin er notuð. Gögn haldast ekki sjálfkrafa innan fyrirtækisins.

OpenAI notar gögn úr ChatGPT Business og Enterprise/Edu ekki til líkanaþjálfunar sjálfgefið. Anthropic hefur sambærilega sjálfgefna stefnu fyrir fyrirtækjaþjónustur, meðal annars Claude for Work. Þetta útilokar ekki ytri vinnslu eða varðveislu; endurgjöf og sérstakt samþykki geta haft önnur skilyrði.

Persónulegir aðgangar, svo sem Pro, lúta öðrum skilmálum og stillingum. Fyrir trúnaðargögn þarf samþykkt vinnusvæði, réttar stillingar og yfirferð gildandi vinnslu- og varðveisluskilmála. MCP eitt og sér veitir ekki það samþykki.

Gagnastefna OpenAI fyrir fyrirtæki ↗
Þjálfunarstefna Anthropic fyrir fyrirtækjaþjónustur ↗

Þú afturkallar einstakt forrit eða lokar allri MCP-tengingunni í vefumsjón. Aðgangur og einkaforskoðanir þess lokast þá. Aðgangslok og uppsögn viðbótar eru aðskilin; viðbótinni er sagt upp í Áskrift og reikningum.

Leiðbeiningar yfirfarnar 15. nóvember 2026. Viðmót og skilyrði AI-forrita geta breyst. Áskrift að þeim og líkananotkun eru ekki innifalin í Gonora-viðbótinni.

MCP fyrir vefsíðuna þína | Gonora