Beint í efni
Vefverslun, vöruleit og rýmissýn

Planki: parketið sést í rýminu áður en það er keypt.

Planki er sérverslun með viðargólf, pallaefni og parketlögn í Kópavogi. Gonora hannaði og smíðaði vefverslunina: vöruleit í 116 gólfefnum, „Sjá í rými“ sem sýnir parketið í herbergi, vörusíður með magnreikni og karfu sem endar í tilboði.

Viðskiptavinur
Planki Parket ehf.
Gonora smíðaði
Vefverslun, vöruleit, rýmissýn og reiknivélar
Vöruúrval
116 gólfefni frá 4 vörumerkjum
Í loftinu
planki.is ↗
planki.is
Forsíða Planka: hágæða viðarparket í miklu úrvali
Vöruleit

116 gólfefni. Fimm síur.

Kaupandinn þrengir úrvalið eftir því sem skiptir máli þegar gólf er valið. Hvert spjald sýnir viðartegund, fjölda mynstra, þykkt og breiddir, svo hægt er að bera saman án þess að opna hverja vöru.

LitatónnGólfefniMynsturYfirborðVörumerki
planki.is/#vorur
Vöruleit Planka með síum
Sjá í rými

Veldu línu, lit og mynstur. Sjáðu gólfið.

Kaupandinn velur vörulínu, parket, mynstur (plankar, fiskibein eða chevron 45° og 60°), flokkun viðar og breidd. Myndin af herberginu uppfærist með hverju vali og hægt er að vista hana.

6 vörulínur4 mynstur3 breiddirVista mynd
planki.is/sja-i-rymi
Sjá í rými: Classic Ash, plankar, 180 mm
Sjá í rými í síma
Magnreiknir

Hvað þarftu mikið?

Á vörusíðum pallaefnis slær kaupandinn inn flatarmál pallsins og fær lengdarmetra með afföllum. Reiknivélin miðar við prófíl borðsins og 5 mm bil og bætir 10% við fyrir afskurð. Niðurstaðan fer beint í fyrirspurn.

Prófaðu sömu reglu hér, fyrir Accoya® í DTD1 prófíl (20 × 142 mm, þekja 147 mm).

Lengdarmetrar með afföllum 225 lm
Án affalla205 lm
Þekja borðs147 mm
planki.is/vara/duffield-accoya-pallaefni
Magnreiknir á vörusíðu Accoya

Ræðum þína þörf.

Segðu okkur hvað þú vilt einfalda. Við byrjum á samtali og afmörkum næsta skref með þér.

Taka spjallið
Planki | Gonora